Gtech Heatwave pallahitari

28.480 kr.

Availability: Out of stock

Vörunúmer: 1-09-005 Flokkar: VÖRUMERKI:

VÖRULÝSING

HEATWAVE PALLA- OG SVALAHITARINN

 

Nú hitnar í kolunum

Með 2 kW afli hitar nýi veðurþolni, veggfesti pallahitarinn okkar allt að 6 metra frá sér á nokkrum sekúndum og gefur ljós og hita allt árið. HeatWave-útihitarinn vegur aðeins 1,5 kg, er léttur og auðveldur í uppsetningu með nútímalegri mattri svartri áferð og sómir sér við hvert heimili.

 

  • 2 kW afl
  • 6 m skyndihitunarradíus
  • Veggfestur
  • Veðurþolinn

Innrauð tækni

Með innrauðum hita verður til hlýtt loft sem dreifist jafnt. Innrauður hiti kemur frá HeatWave-pallahitaranum; með geislunum hitar hann allt sem á vegi þeirra verður og tilfinningin er eins og að sólin sé að skína á mann. Gamlir pallahitarar eru dýrir og afkastalitlir þar sem mestallur hiti glatast um leið og hann er framleiddur. Gtech HeatWave pallahitarinn sem gengur fyrir innrauðri tækni hlýjar fólki og gæludýrum og það þarf ekki að finna pláss fyrir fyrirferðarmikla gaskúta.

Árið Um Kring

Flottur, snjall og kraftmikill útihitari – árið um kring

Rafknúni Gtech HeatWave pallahitarinn gefur frá sér daufan bjarma, er sparneytinn og er heilsárslausn við upphitun svæða utanhúss. Með innrauðri tækni fæst tilfinning fyrir sólarhita sem gerir útisvæðið að þægilegu afdrepi – jafnvel þó að lofthitinn eða árstíðin myndi undir venjulegum kringumstæðum dæma fólk til inniveru.

Flyttu út…

Svalir, verandir, bílskúrar, gripahús og verkstæði – það ætti ekki að þurfa að sniðganga þessi dýrmætu útisvæði þegar hinar fáu hlýju sumarvikur eru liðnar.

Ekki festast inni, farðu út og njóttu útiverunnar með bókinni sem þú getur ekki lagt frá þér, ljúktu við tölvupóstana eða drífðu þig í æfingarnar úti í bílskúr sem þú hefur verið að fresta. Hægt er að festa Gtech HeatWave pallahitarann á hvaða vegg eða fast yfirborð sem er svo þú getur fengið þér heitt súkkulaði og notið útisvæðisins allan ársins hring.

 

Þægilegur hiti

Óþarfi að hópast í kringum stóra og groddalega gashitara. Þægilegt hlýlegt ljósið sem kemur af 2450k litaðri hitaperu skapar fallega lýst útisvæði án skarps ljóss og er alveg hljóðlaust

Fyrirferðarlítill

Þar sem hitarinn er aðeins 570x105mm að stærð þá er hægt að falla í stafi yfir útisvæðum sem áður voru óhrjáleg með klunnalegum útihitunum sem pössuðu ekki á staðinn. Ekki er lengur þörf á að geyma hluti undir plastábreiðum sem troðið er inn í bílskúr, skúrinn eða útskotið – HeatWave pallahitarinn rúmast auðveldlega í skúffu eða eldhússkáp.

Einfaldur í notkun

Þú stingur bara í samband og kveikir á, það er allt og sumt! Gtech HeatWave pallahitarinn er afgreiddur samsettur sem gefur þér meiri tíma til að njóta samveru með vinum eða laumast út úr húsinu og njóta fersks andblæs. Með 2 kW afli hitar nýi veðurþolni, veggfesti pallahitarinn okkar allt að 6 metra frá sér á nokkrum sekúndum og gefur ljós og hita allt árið.