Gtech Myo Touch Nuddbekkur

86.680 kr.

Availability: In stock

86.680 kr.

Availability: In stock

Gtech
Add to cart
KAUPA NÚNA
Vörunúmer: 1-11-001 Flokkar: Tag: VÖRUMERKI:

VÖRULÝSING

Myo Touch nuddbekkur

Líkamsnudd eða partanudd

Myo Touch er stillanlegur sjálfvirkur nuddbekkur frá Gtech. Sérsniðin áreynslulaus upplifun innan örfárra mínútna, inni á þínu heimili, hvenær sem er um leið og þú þarft á nuddi að halda.

  • Sjálfvirkt nudd inni á þínu heimili innan örfárra mínútna
  • Veldu heilt líkams- eða svæðanudd.
  • Stinnt en um leið mjúkt nudd hjól með stillanlegum afli.
  • Bekkur úr formuðum striga og álgrind.
  • Fellur saman og fyrirferðarlítiðll í geymslu milli þess sem bekkurinn er notaður

SLÖKUN MÆTIR TÆKNI

Leggstu aftur og njóttu þess að láta nudda allan líkama þinn, eða stilltu bekkinn á það svæði sem þú ákveður, svo sem axlir, mjóbak, rass eða læri. Sérsniðið nudd fyrir þig allt frá því að vera það létt að þú finnur varla fyrir snertingu þess og upp í djúpt og kraftmikið. Með MYO Touch færðu nudd án nuddara. Ekki þarf að panta tíma eða fara að heiman

EFTIR LANGAN ERFIÐAN DAG

Verkir og vandamál líkamans eru oft einkenni sem koma fram vegna hraða og streitu í lífi okkar – ýmiss einkenni geta komið fram sem líkamlegir kvillar, allt frá spenntum herðum til þreyttra mjóbaksvöðva og bakverkja. Gtech MYO Touch er nuddarinn þinn, heima hjá þér sem og er hannaður til að hjálpa þér við að ná slökun, róa líkama og sál, létta hugann sem og líkama. Njóttu nuddsins á hverjum degi, taktu frá og settu í forgang tíma með MYO Touch .

TÆKNINÝJUNG SEM HÖNNUÐ VAR TIL SLÖKUNAR

Njóttu fullkomins æðruleysis – Með mjúkum striganum og hljóðlátum vélbúnaði hreyfist Gtech MYO Touch áreynslulaust og veitir þér þitt sérsniðna nudd. Veldu fullt líkamsnudd eða partanudd, kröftugt eða með litlum styrk og efldu hvern dag. MYO Touch er auðveldur í uppsetningu, notkun og frágangi, MYO Touch gerir þér kleift að slaka á þínum eigin forsendum og inni á þínu heimili.

SLÖKUN DAG HVERN

Gtech MYO Touch nuddbekkurinn var hannaður með það í huga að hjálpa til við slökun og streitulosun eftir langan, jafnvel strangan dag. Notendahandbók fylgir MYO Touch sem inniheldur leiðbeiningar fyrir hugleiðsluæfingar sem og öndunar- og sjónrænnar tækni æfinga sem auka ávinninginn af nuddinu sjálfu.

Sjálfvirkur hljóðlátur búnaður

Hvort sem þú notar MYO Touch í 15 mínútur sem einfaldari leið til að létta á þreyttum, stirðum vöðvum eftir æfingar eða þá erfiðan vinnudag, þá er MYO Touch nákvæmlega það sem þú þarft á að halda. Áferðin og raufarnar á keflinu komast að vöðvunum, vinna úr spennunni og hjálpa þér við að losa streitu.

Sérsniðinn að þínum þörfum

Við njótum þess öll að upplifa örlítið mismunandi nuddaðferðir og þess vegna er hægt að sérsníða stillingar MYO Touch nuddbekkinn algjörlega að því sem þú þarft á að halda í hvert skipti sem þú leggst á bekkinn. Byrjaðu á að velja svæðið sem þú vilt beina meðferðinni að. Settu stopparana á brautina til að ákvarða áherslusvæði nuddsins frá annaðhvort afmörkuðum vöðvum eða öllum líkamanum. Þú ákveður einning hversu kröftugt nuddið er með einföldum rofa.

Nudd innan mínútna

Við hönnuðum MYO Touch einfaldan og notendavænan til þess að þú getir notið nuddsins eins fljótt og þú vilt eða þarft. Auðvelt er að setja upp brautina og bekkinn sem raðast saman á nokkrum sekúndum. Stilltu afl nuddsins og ákvarðaðu fókusinn á nuddinu og þá er allt til reiðu, einfaldara getur það ekki orðið. MYO Touch er á einfaldan og skjótan hátt brotinn saman og þannig fer ótrúlega lítið fyrir bekknum í geymslu

Einföld stjórntæki

Myo Touch nuddbekkurinn er tengdur og knúinn rafmagni, með langri snúru sem gerir þér kleift að setja bekkinn upp í þínu uppáhalds rými. MYO Touch er þannig hannaður  að á honum slokknar eftir 15 mínútur, sem þýðir að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að taka hann úr sambandi ef þú ferð að dorma eða jafnvel sofnar.

 

Öryggið í fyrirrúmi

15 mínútna útsláturinn er aðeins einn af mörgum öryggisþáttum vörunnar. Ef þú þjáist af einhverjum læknisfræðilegum kvillum, notar lækningatæki eins og gangráð eða ert á lyfjum þá vinsamlegast hafðu samband við heimilislækninn þinn áður en þú notar MYO Touch.

Hvort sem er eftir langan dag við skrifborðið eða annað líkamlegt erfiði, hugsaðu þá vel um líkama þinn …

Verkir og vandamál líkamans eru oft einkenni sem koma fram vegna hraða og streitu í lífi okkar – ýmiss einkenni geta komið fram sem líkamlegir kvillar, allt frá spenntum herðum til þreyttra mjóbaksvöðva og bakverkja. Gtech MYO Touch er nuddarinn þinn, heima hjá þér sem og er hannaður til að hjálpa þér við að ná slökun, róa líkama og sál, létta hugann sem og líkama. Njóttu nuddsins á hverjum degi, taktu frá og settu í forgang tíma með MYO Touch .

 

Mjúkur formaður strigi á álgrind.

Mjúkur striginn styður vel við  líkamann og fæturnir falla á sinn stað sem er formaður  í strigann.  Myo Touch kemur þér í  bestu mögulegu stöðu fyrir slakandi og endurnærandi nuddið.

Auðveld uppsetning og frágangur.

MYO Touch er einstaklega auðvelur í upp- setningu – þú setur setur saman  brautina sem ér í  3  hlutum , rennir nuddvalsinum  á sinn stað og staðsetur bekkinn ofan við búnaðinn.

Stillanlegur að þínum þörfum.

Þú velur hversu stífur og strekktur striginn er, ákveður  hversu milt  eða kröftugt og  djúpt  nuddið verður og að lokum stillir þú hvort heldur sem er  líkamsnudds eða partanudds.